Skipt um áhöfn hjá portúgölsku flugsveitinni

Föstudagur 31. ágúst 2012

Flugsveit portúgalska flughersins sem hefur nú í tvær vikur annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Um helgina verður skipt um áhöfn Portúgala hér á landi og má því gera ráð fyrir aðflugsæfingum inn á varaflugvellina, þ.e. Akureyri og Egilsstaði næstkomandi mánudag og þriðjudag.

Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og er ráðgert að verkefnið verði unnið með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við samninga sem í gildi eru, því ljúki um miðjan september.

Sjá fyrri frétt um loftrýmisgæslu Portúgal.