Slasaður skipverji sóttur um borð í togskip

  • LHG_utkall03052012-(7)

Föstudagur 7. september 2012

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF var kölluð út um klukkan 06:35 í morgun eftir að slys varð um borð í íslensku togskipi sem staðsett var um 50 sjómílur vestur af Snæfellsnesi.  Fór þyrlan í loftið kl. 07:11. Flogið var beint á staðinn þar sem sigmaður og læknir sigu niður í skipið og undirbjuggu sjúkling fyrir flutning.

Var hífingum lokið kl. 08:29 og var þá flogið á Landspítalann í Fossvogi þar sem lent var kl. 09:11. Á staðnum var vindur VNV -  12-14 m/sekúndu og  leiðinda sjólag. Ölduhæð 3-4 metrar.