Starfsmaður Landhelgisgæslunnar heldur til starfa á vegum Íslensku friðargæslunnar á Sri Lanka
Þriðjudagur 3. janúar 2006
Starfsmaður Landhelgisgæslunnar, Marvin Ingólfsson, mun á næstu dögum halda til Sri Lanka þar sem hann mun starfa fyrir Íslensku friðargæsluna við vopnahléseftirlit á vegum Sri Lanka Monitoring Mission - SLMM. Marvin hefur skipstjórnarmenntun og mun starfa við vopnahléseftirlit á sjó (á ensku Naval Monitor). Marvin hefur einnig hlotið þjálfun hjá sprengjusveit Landhelgisgæslunnar. Gert er ráð fyrir að Marvin muni dvelja u.þ.b. hálft ár á
SLMM var komið á fót samhliða vopnahléssamningum sem stjórnarherinn á
Um það bil 60 starfsmenn frá öllum Norðurlöndunum vinna að þessu verkefni en þar af eru 5 Íslendingar og er það nokkuð hátt hlutfall miðað við fólksfjölda. Nánari upplýsingar um starfsemi SLMM má fá á slóðinni: http://www.slmm.lk/
Sjá meðfylgandi mynd sem tekin var af Marvin sl. sumar er hann var að störfum hjá sprengjusveit Landhelgisgæslunnar.
lögfræðingur/upplýsingaftr.