Vélsleðamaður fluttur með þyrlu á sjúkrahús
Fimmtudagur 29. desember 2005.
Vélsleðamaður sem hafði fallið niður um ís og orðið fyrir ofkælingu var í dag fluttur með Líf, björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, á sjúkrahús í Reykjavík.
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 16:17 í vegna vélsleðamanns sem hafði fallið niður um ís og orðið fyrir ofkælingu en hann var í vélsleðaferð ásamt félögum sínum á Lyngdalsheiði við Kálfstinda. Talið er að hann hafi verið um 5-10 mínútur í ísvatni áður en félagar hans náðu að bjarga honum upp úr vökinni.
Félagar vélsleðamannsins náðu að koma honum upp í jeppa og keyra þar til þeir komust í símasamband og hringja á Neyðarlínuna sem óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Var búið að koma manninum fyrir í sjúkrabíl við Gjábakkaveg er Líf kom á staðinn kl. 16:41.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.