Opnun tilboða hjá Ríkiskaupum vegna leigu á þyrlu
Fimmtudagur 10. janúar 2013
Í dag voru opnuð tilboð í leigu á þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna en útboð var auglýst síðastliðið haust. Tilboð bárust frá tveimur aðilum í leigu á tveimur þyrlum. Um er að ræða tilboð í leigu á Super Puma þyrlum, af gerðinni EC 225.
Ríkiskaup og Landhelgisgæslan mun fara yfir tilboðin á næstu dögum og vikum m.t.t. hvort þau standist þær kröfur sem gerðar eru skv. útboðsgögnum. Stefnt er að því að yfirferð ljúki innan 4 vikna.
Mynd Gassi.