Starfsfélögum samfagnað við starfslok

  • _33A9293

Mánudagur 14. janúar 2012

Síðastliðinn föstudag hélt Landhelgisgæslan kveðjuhóf til heiðurs starfsfólki sem lét af störfum um áramótin eftir áratuga farsælt starf hjá Landhelgisgæslunni.  Hátíðin var haldin í veislusal Nauthóls í Nauthólsvík og fjöldi starfsmanna úr öllum deildum kom saman og samfagnaði þeim við starfslok.

Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar þakkaði þeim öllum fyrir vel unnin störf og samfylgdina í gegnum árin. Fór hann í gegnum það helsta í starfsferli hvers og eins, sem var hjá mörgum afar viðburðaríkur. Þau sem létu af störfum um áramótin, nokkur eftir 30-40 ára starf eru:

LokahofAO
Árni Ólason sem hóf fyrst störf árið 1958 og þá sem messagutti, starfaði síðast sem smyrjari á varðskipunum.

 
_33A9241
Ingvar Kristjánsson, sem hóf störf árið 1974 sem vélstjóri, starfaði lengi með Gylfa í sprengjusveit en sinnti síðast starfi skipatæknistjóra. Gylfi Geirsson   sem hóf störf árið 1971 á varðskipinu Óðni sem loftskeytamaður, var lengi starfsmaður sprengjusveitar og starfaði síðast sem framkvæmdastjóri erlendra verkefna.

_33A9212
Haraldur Örn Haraldsson smiður sem hóf fyrst störf árið 1968, þá sem verktaki en varð starfsmaður skipatæknideildar árið 2000. Hann fór reyndar 17 ára sem messagutti á varðskipinu Albert en ekki varð framhald á því. Átti betur við hann að starfa við smíðar.

Jakob Jónsson, sem starfaði sem varðstjóri í stjórnstöð frá árinu 2006 komst því miður ekki til lokahófsins. Hann hóf fyrst störf hjá LHG á áttunda áratugnum og aftur frá 1. maí 2006 þegar starfsmenn neyðarlínunnar í vaktstöð siglinga gerðust starfsmenn Landhelgisgæslunnar. Þar fyrir utan  var Jakob við störf á strandastöðvunum t.d. í Vestmannaeyjum, Hornafirði og í Reykjavík.

_33A9221

 Ragnar Ingólfsson sem hóf störf sem flugvirki árið 1978 og hefur hann auk þess að starfa í flugdeildinni komið að verkefnum víða í starfseminni.

LokahofRL2
Ríkharð Laxdal hóf störf árið 1973 á varðskipunum og fyrst sem háseti og síðar lengst af sem smyrjari. fyrst sem háseti og síðar sem smyrjari, samtals urðu árin 24 áður en hann gerðist varðmaður í varðskýli LHG á Faxagarði og á flugvellinum.

Jakob Jónsson, varðstjóri í stjórnstöð LHG 2006-2012. Hann komst ekki til lokahófsins.

_33A9376
Jón Ebbi Björnsson varðstjóri (fyrir miðju) sem hóf störf árið 1985 sem loftskeytamaður og fluttist yfir í stjórnstöð LHG árið 1987.  Hann upplifði gífurlegar tæknibreytingar á sínum starfsferli en á tímabilinu færðust fjarskipti á sjó úr „morse code“ yfir í tölvutæk gervihnattafjarskipti.  

Lokahof5
Sigríður Ólafsdóttir sem frá árinu 2003 annaðist mötuneyti á Seljavegi og sinnti ræstingum í Skógarhlíð frá árinu 2006. Á myndinni er hún ásamt eiginmanni sínum.

_33A9316
Sjöfn Axelsdóttir kortagerðarmaður, önnur frá vinstri, hóf störf hjá Sjómælingum Íslands árið 1978. Hún er hér ásamt samstarfsfélögum Snjólaug Guðjohnsen til vinstri og Þórði Gíslasyni þriðji frá vinstri.

Lokahof11
Árni Ólason, Ríkharð Laxdal, Haraldur Örn Haraldsson, Jón Ebbi Björnsson, Sigríður Ólafsdóttir, Ragnar Ingólfsson, Gylfi Geirsson, Sjöfn Axelsdóttir, Ingvar Kristjánsson

_33A9303
Svanhildur Sverrisdóttir, starfsmannastjóri og Georg Kr. Lárusson forstjóri LHG.

_33A9313
Henning Aðalmundsson stýrimaður og Sindri Steingrímsson, flugrekstrarstjóri

Lokahof8
Jónas K. Þorvaldsson, sprengjusérfræðingur, Ingvar Kristjánsson og
Tómas Vilhjálmsson, flugvirki

Lokahof10
Níels B. Finsen, verkefnastjóri sjómælingum, Gylfi Geirsson og
Sigurður Ásgrímsson framvæmdastjóri séraðgerða og sprengjueyðingasviðs (SOS)


Lokahof1
Einar Sigurgeirsson, varðstjóri, Jón Ebbi Björnsson og eiginkona hans
spjalla við Hjalta Sæmundsson, aðalvarðstjóra í stjórnstöð LHG

Lokahof9
Georg Kr. Lárusson, forstjóri LHG, Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri
lofthelgis- og öryggismálasviðs og Gestur Pálmason, sérfræðingur SOS sviði.

Lokahof2
Steinvör Gísladóttir, ritari forstjór, Rannveig Friðriksdóttir, bókari og
Linda María Runólfsdóttir, fulltrúi starfsmannasviði.

Lokahof4
Guðmundur Birkir Agnarsson, stýrimaður, Bergþór Atlason, varðstjóri og
Hilmar Helgason, framkvæmdastjóri sjómælingasviðs.

_33A9374
Dagmar Sigurðardóttir, lögfræðingur og Marvin Ingólfsson, sprengjusérfræðingur

Lokahof12
Sigurjón Sigurgeirsson, flugvirki, Henning Aðalmundsson, stýrimaður,
Daníel Hjaltason, flugvirki, eiginkona Ragnars Ingólfssonar, flugvirkja og Þorkell
Guðmundsson, gæðastjóri í flugdeild spjalla.

Lokahof3
Jón B. Guðnason og Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra

Lokahof6
Steinar Clausen, varðstjóri, Páll Egilsson, vélstjóri, Ríkharð Laxdal
og Skúli Sigurbjörn Jóhannesson, varðmaður

Lokahof7
Ágúst Ágústsson, vélstjóri, Rafn S. Sigurðsson, háseti, Árni Ólason og
Jón Páll Ásgeirsson, yfirstýrimaður.

_33A9360
Auðunn Kristinsson, verkefnisstjóri aðgerðasviði og Gestur Pálmason, sérfræðingur

_33A9398
Ragnar Ingólfsson, Sverrir Andreasen flugvirki og Sindri flugrekstrarstjóri

_33A9300
_33A9321
Dagmar, lögfræðingur, Sólmundur Már Jónsson framkvæmdastjóri rekstrar og fjármálasviðs, Steinvör ritari forstjóra, Rannveig bókari og Linda María, fulltrúi eldress.

_33A9350
Harpa Karlsdóttir, fulltrúi spjallar við Brynhildi ÁstuBjartmarz flugmann.

_33A9390
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi og Sigurður Ásgrímsson
framvæmdastjóri séraðgerða og sprengjueyðingasviðs (SOS) spjalla

_33A9309
Andri Leifsson, stýrimaður og Sigurður Ásgeirsson spjalla.

_33A9206
_33A9201
Árni Sæberg ljósmyndari kom við og gaf okkur leyfi til að birta myndir sínar á heimasíðunni.