Rekald sást í flugi TF-SIF sem getur verið hættulegt minni bátum og skipum

  • _MG_3695

Laugardagur 16. febrúar 2013

TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í hefðbundið gæslu- og eftirlitsflug um SV og SA mið. Í eftirlitsbúnaði sást skip sem ekki var með kveikt á eftirlitsbúnaði. Haft var samband við skipið og taldi skipstjóri að ekki væri þörf á að vera með kveikt á eftirlitsbúnaði þar sem hann var staðsettur. Stýrimenn LHG upplýstu hann þá um reglugerð nr. 80/2013 sem tók gildi þann 16.01.2013 þar sem skýrt er kveðið á um að öll skip sem notuð eru í atvinnuskyni skulu senda AIS merki frá sér. Kveikti skipstjóri þá strax á búnaði og var brýnt fyrir honum að fylgjast með sendingum.  Annars gæti hann átt von á kæru vegna brots á reglugerðinni.

Einnig sást í fluginu töluvert stórt krosslaga rekald, ca. 15 x 6 metrar á kant sem var staðsett um 33 sml VSV af Reykjanesi. Virtist það vera með trédekki og bar öll merki flotbryggju af einhverri sort. Miðað við stærð og lögun rekaldsins, og þess að það stendur frekar lágt í sjó er af því veruleg hætta búin, sérstaklega minni bátum og skipum. Engin umferð var á þessum slóðum en stjórnstöð var upplýst og send verður út siglingaviðvörun.

 15022013_Rekald
Rekaldið sem sást í fluginu

TF-SIF flaug einnig yfir sjö norsk loðnuskip sem voru að veiðum á austurmiðum en þau luku veiðum á miðnætti.

15022013_sifflug
Flugleið TF-SIF í gær