Sprengjudeildin aðstoðar í ófærðinni - Aðstoðarbeiðnir af fjöllum berast í gegnum neyðar- og uppkallsrás skipa
Miðvikudagur 6. mars 2013
Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingasviðs Landhelgisgæslunnar voru í morgun kallaðir til aðstoðar lögreglu og slökkviliði höfuðborgarsvæðisins vegna ófærðarinnar. Fylgja ökutæki þeirra nú neyðarbílum í útköll og tryggja greiðan aðgang þeirra um höfuðborgarsvæðið. En þess má geta að þessir aðilar eru einnig með réttindi til sjúkraflutninga.
Einnig eru nokkur dæmi um að vegfarendur á fjallvegum og heiðum víða um land hafi gert vart við sig á neyðar- og uppkallsrás skipa í morgun, þ.e. rás 16 og þannig náð sambandi við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sem síðan hefur hefur komið upplýsingum og aðstoðarbeiðnum áfram til lögreglunnar.
Myndir SOS
Samvinna í ófærðinni
Annar af tveimur bílum sprengjudeildar