Fiskiskip varð vélarvana við Dalatanga

  • Ramona

Mánudagur 22. apríl 2013 kl. 22:20

Landhelgisgæslunni barst kl. 21:03 aðstoðarbeiðni á rás 16 frá fiskiskipinu Ramónu ÍS sem var með bilaða vél við Dalatanga. Flutningaskipið Green Ice C6SO4 sem var á svæðinu bauð samstundis fram aðstoð og var fiskiskipinu ráðlagt að þiggja hana þar til björgunarskip kæmi á staðinn. Var síðan kallað út björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Neskaupstað.

Að sögn varðstjóra í stjórnstöð LHG kom björgunarskipið á vettvang um kl. 22:00 og tók það þá fiskiskipið í tog. Eru skipin nú á leið til hafnar.

Mynd Þorgeir Baldursson.