Fyrsti dagur strandveiða í dag - fjöldi báta án lögskráningar
Fimmtudagur 2. maí 2013
Samkvæmt greiningardeild Landhelgisgæslunnar eru nú 60 bátar án lögskráningar á sjó en í dag er fyrsti dagur strandveiða. Landhelgisgæslan brýnir fyrir sjómönnum að hafa þessi mál í lagi enda eru sjómenn ekki tryggðir nema vera lögskráðir. Til þess þarf að hafa samband við Siglingastofnun.
Mynd úr safni LHG