TF-GNA sótti sjúkling um borð í erlent farþegaskip
Fimmtudagur 30. maí 2013
Landhelgisgæslunni barst kl 15:14 aðstoðarbeiðni frá norsku farþegaskipi vegna farþega um borð með hjartaáfall. Skipið var var staðsett um 47 sjómílur suður af Ingólfshöfða og var því strax gefin fyrirmæli um að sigla nær landi til að stytta vegalengd þyrlu í útkalli. Þyrla var kölluð út kl 15:42 og var þyrlulækni komið í samband við lækni um borð til að fá nánari upplýsingar. TF-GNÁ fór í loftið kl. 16:14 og var þyrluáhöfn komin í samband við skipið kl. 17:13. Sjúklingur var kominn um borð í þyrluna kl. 17:42 og var þá flogið til Reykjavíkur og lent kl. 18:39 við Landspítalann í Fossvogi.
Myndir úr útkalli frá áhöfn TF-GNA.
Mynd af TF-GNA Baldur Sveinsson.