TF-LIF fengin til aðstoðar við flutning á TF-TAL

  • TFTAL_flutt

Miðvikudagur 19. júní 2013

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF,  flutti í dag flugvélina TF-TAL, af staðnum þar sem hún brotlenti við Sultartangalón, á geymslusvæði þar sem unnið er að gerð Búðarhálsvirkjunar. Fulltrúar rannsóknarnefndar samgönguslysa skoða þar vélina áður en hún verður flutt til Reykjavíkur.

Flugvélin brotlenti síðastliðinn mánudag á svæði við Sultartangalón sem er erfitt yfirferðar. Því óskaði rannsóknarnefnd samgönguslysa eftir að þyrla LHG yrði fengin til að flytja flugvélina á stað þar sem mögulegt er að rannsaka flugvélina.  Vörubíll flytur flugvélina síðar í dag í skýli rannsóknarnefndarinnar í Reykjavík, þar sem stærstur hluti rannsóknarinnar fer fram.

Mynd áhöfn TF-LIF