Varðskipið Ægir stóð skip að meintum ólöglegum veiðum
Sunnudagur 6. nóvember 2005.
Varðskipið Ægir tók skip fyrir meintar ólöglegar togveiðar út af Norðurlandi um helgina. Skipið var að veiðum inni á svæði þar sem smáfiskaskilja er áskilin en skipið var ekki með slíka skilju.
Skipið var fært til hafnar á Siglufirði þar sem sýslumaður tók við málinu.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingafulltrúi