Reynt að lágmarka hættu á umhverfisslysi

Rétt í þessu var að ljúka samráðsfundi Landhelgisgæslu, Hafrannsóknarstofnunar, Umhverfisstofnunar og Samgöngustofu þar sem ákveðin voru næstu skref vegna elds um borð í flutningaskipinu Fernanda. 

Við ákvörðun næstu skrefa er horft til þess að lágmarka áhættu á að skipið sökkvi með hliðsjón af umhverfisvá en fyrst og síðast að tryggja öryggi allra þeirra aðila sem koma að aðgerðinni. 

Meðan aðstæður leyfa mun varðskipið Þór draga Fernanda á svæði eins fjarri hrygningarsvæðum og veiðislóðum og kostur er.  Þá er einnig markmið að komast á svæði þar sem vindátt er hagstæð miðað við hugsanlegt rek á skipinu ef þörf er á að hætta drætti á því af öryggisástæðum.  Ef svo færi að skipið sökkvi miðast aðgerðir við að sem minnstar líkur verði á því að olía berist á strönd með tilliti til hafstrauma.  Sem stendur er ekki talið óhætt að dæla sjó á Fernanda með tilliti til stöðugleika skipsins.

Fylgst er náið með framvindu mála og staðan endurmetin eftir upplýsingum og aðstæðum hverju sinni.  Sem stendur ganga aðgerðir vel og varðskipið Þór siglir á 6 hnúta hraða.