Leit að neyðarsendi hefur ekki borið árangur
Laugardagur 29. október 2005.Leit að neyðarsendi hefur engan árangur borið. Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, flaug yfir leitarsvæðið í gær og björgunarsveitir og björgunarskip af Suðurnesjunum leituðu einnig eins og fram kom í fréttatilkynningu í gær.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga heldur áfram að kanna hvort neyðarskeytin berast frá skipi eða flugvél í neyð en enn sem komið er bendir ekkert til að svo sé og engin skýring hefur fengist á því hvers vegna neyðarskeytin hafa borist.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.