Varðskip heldur úr höfn til eftirlits

Mánudagur 13. janúar 2013

Varðskipið Þór hélt í dag úr Reykjavíkurhöfn og verður á næstunni við eftirlit á íslenska hafsvæðinu. Gert er ráð fyrir að varðskipið verði staðsett á loðnumiðum og til taks þegar skip hefja veiðar. 

Í vetur er Landhelgisgæslan með tvö varðskip í rekstri og er annað þeirra ávallt á sjó eða til taks. Skipið er ýmist á sjó innan álagssvæða eða í höfn nærri svæðum þar sem mestar líkur eru á aðstoð þeirra. Þegar skip eru í höfn er það fullmannað og sinnir áhöfnin æfingum, þjálfun og viðhaldi á skipinu.