Varðskipið Þór verður til sýnis á Seyðisfirði

  • IMG_1721_fhdr

Föstudagur 17. janúar 2014

Varðskipið Þór er væntanlegt  til Seyðisfjarðar á morgun, laugardaginn 18. janúar og er áætlað að varðskipið verði opið til sýnis frá kl. 13:00-18:00. Áhöfn varðskipið mun taka á móti gestum og sýna helstu vistarverur og segja frá búnaði og getu skipsins.

Tæknilegar upplýsingum um Þór eru á heimasíðu Landhelgisgæslunnar  eða hér: http://www.lhg.is/starfsemi/adgerdasvid/nyttvardskipthor/

Varðskipið Þór kom til landsins þann 26. október 2011 og hefur skipið sinnt margvíslegum verkefnum frá komu til landsins. Síðast björgunaraðgerðum vegna flutningaskipsins Fernanda. Þór hefur mikilvægu hlutverki að gegna í samstarfi þjóða á Norður Atlantshafi. Á síðustu árum hefur umferð frá Noregi og Rússlandi aukist mikið og er vissulega þörf á öflugu varðskipi til að vera til taks enda er því spáð að með opnun norðaustursiglingarleiðarinnar eigi umferð um svæðið eftir að aukast umtalsvert.

Mynd Guðmundur St. Valdimarsson