Leitarsvæðið nær frá Reykjanestá að austasta hluta Snæfellsness

Sunnudagur 2. febrúar 2014

Fréttatilkynning send frá Samhæfingarstöð Almannavarna kl. 17:23

Nú eru tvær björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ og TF-LIF, við leit að báti á Faxaflóa. Auk þess eru tvær finnskar björgunarþyrlur, sem staddar voru hér á landi vegna æfingarinnar Iceland Air Meet 2014, nýttar við leitina en þær fljúga nú yfir norðanverðan flóann. 

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Grindavík, Sandgerði, Hafnarfirði, Reykjavík og Rifi eru einnig við leit auk nokkurra minni björgunarbáta. Björgunarsveitir og lögregla á svæðinu eru með eftirgrennslan frá landi. 

Upphaflega neyðarkallið heyrðist í báti við Akranes og í kerfi LHG og þar kom fram að leki væri komin að bátnum og að menn væru að fara í björgunargalla. Engar frekari upplýsingar hafa borist síðan og samkvæmt varðstjórum Landhelgisgæslunnar vantar ekki skip inn í tilkynningaskylduna hjá Vaktstöð siglinga. 

Leitarsvæðið er víðfemt, en segja má að það nái frá Reykjanestá að austasta hluta Snæfellsness en áhersla er lögð á að leita innarlega í Faxaflóa þar sem báturinn sem heyrði neyðarkallið var staddur rétt utan við Akranes. Veðurspá á leitarsvæðinu gerir ráð fyrir norðaustan 10-20 m/sek, skýjuðu með köflum og hita í kringum frostmark.