Norsku varðskipsmennirnir á heimleið eftir að hafa verið nauðugir í haldi í rússneska togaranum Elektron
Fimmtudagur 20. október 2005.
Varðskipsmennirnir tveir sem hafa verið nauðugir í haldi áhafnar rússneska togarans Elektron síðan á mánudag var sleppt í morgun kl. 8 og eru þeir á heimleið. Elektron er kominn inn í rússneska landhelgi og veltur framhald málsins á því hvernig rússnesk yfirvöld taka á málinu.
Þetta kemur fram á heimasíðu norska dagblaðsins Aftenposten í dag á slóðinni:
http://www.aftenposten.no
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.