Varðskipið Týr breytir um lit

Þriðjudagur 4. mars 2014

Varðskipið Týr er nú í slipp á Akureyri og hefur verið málaður rauður vegna leiguverkefnis sem mun hefjast frá byrjun maí nk. Landhelgisgæslan og Fáfnir Offshore hf undirrituðu nýverið fimm mánaða samning um leigu á varðskipinu þar sem skipið verður leigt til eftirlits- og björgunarstarfa sem og almennra löggæslu- og þjónustustarfa fyrir Sýslumanninn á Svalbarða með heimahöfn í Longerbyen.  Sýslumaðurinn á Svalbarða fer með yfirstjórn allrar stjórnsýslu sem lýtur að aðkomu norska ríkisins á Svalbarða, þar með talið löggæslumál til sjós og lands, leit og björgun og umhverfismál.

Landhelgisgæslan hefur beint og óbeint sinnt verkefnum fyrir Sýslumanninn á Svalbarða gegnum árin en mikið samstarf hefur verið milli þyrlusveitar Sýslumannsins og þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.  Landhelgisgæslan telur afar mikilvægt að efla samstarf leitar- og björgunaraðila á Norður-Atlantshafi og því skapar þessi samningur enn frekari möguleika á að efla samstarf milli Svalbarða og Íslands um öryggismál á Norðurslóðum.

Um tímabundna leigu er að ræða þar til nýtt skip Fáfnis verður fullbúið, en það skip er fyrsta sérhæfða skip Íslendinga til að þjónusta olíuborpalla og er sérstaklega hannað til að sinna verkefnum á norðlægum slóðum.  Fyrirtækið Fáfnir Offshore hefur haslað sér völl á sviði þjónustu við olíurannsóknir og olíuvinnslu á Norðurslóðum og hyggst enn frekar færa út kvíarnar á þeim vettvangi.  Fyrirtækið hefur gert samning við Sýslumanninn á Svalbarða um gæsluverkefni í kringum eyjarnar næstu tíu árin og mun nýta hið nýja skip til þeirra verka.

Myndir Guðmundur St. Valdimarsson