TF-LÍF flutti þyrlu sem varð fyrir óhappi

Þriðjudagur 6. maí 2014

Landhelgisgæslunni barst fyrir helgi beiðni um aðstoð frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa við að flytja þyrlu sem varð fyrir óhappi á Eyjafjallajökli þann 1. maí sl.

TF-LÍF flutti í gær þyrluna niður á láglendi þar sem rannsóknarnefndin tók við henni til rannsóknar.