Sjófarendur gæti að hlustvörslu á rás 16

  • _MG_0566

Miðvikudagur 7. maí 2014

Strandveiðitímabilið hófst á miðnætti þann 5. maí og hefur verið talsvert annríki í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar síðastliðna daga. Um 750 skip og bátar hafa verið á sjó sem er um 200-300 fleiri heldur en undanfarnar vikur. Veiðarnar hafa farið ágætlega af stað og aðeins minni háttar óhöpp komið upp. Eldur kom upp í báti á Breiðafirði án þess að manntjón hlytist af og hefur nokkrum verið gert að sigla í land þar sem staðsetningarbúnaður þeirra var ekki í lagi.  Búast má við mikilli ásókn miðað við reynsluna síðustu ár.

Landhelgisgæslan minnir skip og báta á að hlusta á neyðarrás 16 á VHF en það er mikilvægur þáttur í öryggismálum sjómanna að Landhelgisgæslan geti leitað til þeirra sem eru að veiðum á sama svæði ef skip eða bátar lenda í óhöppum.

Landhelgisgæslan er reiðubúin fyrir tímabilið og til taks að aðstoða alla sem á þurfa að halda. Nánar um strandveiðarnar á heimasíðu Fiskistofu. http://www.fiskistofa.is/