Bátur vélarvana í Önundarfirði

Miðvikudagur 21. maí 2014

Landhelgisgæslunni barst kl 00:38 aðstoðarbeiðni á rás 16 frá bát sem var vélarvana skammt frá landi við Barða í sunnanverðum Önundarfirði.  Báturinn fékk á sig brot og allur fiskur úti í hlið, setti hann út rekakkeri til að minnka rek. Haft var samband við báta og skip á svæðinu og hélt samstundis nærstaddur bátur til aðstoðar. Til öryggis voru björgunarsveitir á svæðinu kallaðar út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Kl 00:49 hafði tekist að lensa sjó úr vélbilaða bátnum sem var kominn afar nærri landi.  Kl 00:55 var hann kominn í tog hjá bátnum sem gaf sig fram á svæðinu og héldu þeir til hafnar á Flateyri. Voru þá allar björgunareiningar afturkallaðar.