Sjúkraflug vegna bílslyss við Borgarnes

Þriðjudagur 4. október 2005.

Læknir í Borgarnesi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um kl. 21:35 og óskaði eftir þyrlu til að sækja unga konu sem lent hafði í alvarlegu umferðarslysi norður af Borgarnesi. 

Áhöfn þyrlunnar Lífar var kölluð út kl. 21:36.  Skömmu síðar var tilkynnt að konan væri komin í sjúkrabíl sem héldi áleiðis til Reykjavíkur á móti þyrlunni. 

Þyrlan Líf fór í loftið kl. 21:01 og lenti norðan við Hvalfjarðargöngin nokkrum mínútum síðar þar sem konan var flutt um borð í þyrluna.  Lent var við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 22:36.

Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.