Varðskipið Þór tók þátt í minningarathöfn við Bolungarvík

Mánudagur 7. júlí 2014

Varðskipið Þór tók á laugardag þátt í minningarathöfn við Stigahlíð í nágrenni Bolungarvíkur þar sem afhjúpað var minnismerki um nærri 240 manns, konur og börn, sem fórust í sjóslysi fyrir 72 árum síðan eða þann 5. júlí 1942. Slysið varð þegar skipalestin QP-13, með sex erlendum skipum á leið til Hvalfjarðar, sigldi inn í tundurskeytabelti út af Aðalvík á Vestfjörðum.

Varðskipið Þór heiðraði minningu þeirra látnu með því að skjóta sex skotum úr fallbyssu skipsins, eitt skot fyrir hvert skip sem fórst þessa örlagaríku kvöldstund. Talið er að þetta sé eitt mesta sjóslys sem orðið hefur við Ísland. Fjögur skipanna voru bandarísk, eitt var breskt og eitt rússneskt. Skipum á svæðinu tókst að bjarga 250 manns af skipunum sex. Vonskuveður var þegar slysið átti sér stað, stormur og skyggni slæmt.

Ljósmyndari Sigurjón J. Sigurðsson.




Frétt Mbl.is 

Sjónvarpsfrétt RUV.

Frétt Stöðvar 2 


Með því að smella hér má lesa frásögn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, af QP13 sem birtist í bókinni  Dauðinn í Dumbshafi, Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður Íshafi 1940-1943.

Þar segir m.a.

„Þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður tókst að bjarga um 250 manns af þeim ríflega 500 sem voru um borð í skipunum sem sukku. Togararnir Lady Madeleine og St. Elstan björguðu rúmlega 60 mönnum. Áhöfn frönsku korvettunnar Roselys, undir stjórn Vaisseu A. Bergeret skipherra, tókst að bjarga 179 mönnum. Þetta litla herskip dvaldi í rúmar sex klukkustundir við leit og björgunarstörf í þungum sjó innan um tundurduflin. Er þetta tvímælalaust eitt mesta björgunarafrek sem hefur verið unnið við strendur Íslands“.