TF-SIF flaug yfir Sigurð VE á Miðjarðarhafi
Undirtitill
Þriðjudagur 15. júlí 2014
TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar sem nú er staðsett við Miðjarðarhaf flaug í dag yfir Sigurð VE, nýtt skip Vestamannaeyinga sem er á leið til landsins frá Tyrklandi þar sem skipið hefur verið í smíðum.
Áhöfn TF-SIF tók mynd af skipinu úr eftirlitsbúnaði flugvélarinnar og var hún að sjálfsögðu send til Ísfélagsins. Skipið er 80 metra langt, 17 metra breitt og er vel búið til veiða á uppsjávarfiski, til dæmis loðnu, síld, makríl og kolmunna.
Verkefni TF-SIF felst í eftirliti fyrir landamæraeftirlitsstofnun Evrópusambandsins, Frontex og fer flugvélin daglega í eftirlitsflug þar sem fylgst er með umferð skipa og báta á svæðinu. Fjórir eru í áhöfn flugvélarinnar auk flugvirkja. Einnig er einn starfsmaður Landhelgisgæslunnar staðsettur í stjórnstöð Frontex í Róm.
Mynd TF-SIF