TF-SIF á leið til Reykjavíkur
Miðvikudagur 20. ágúst 2014
TF-SIF er nú á leið til Reykjavíkur eftir að hafa kannað aðstæður við Bárðarbungu og safnað efni með hitamyndavél, eftirlits- og ratsjárbúnaði. Flugvélin fór til eldsneytistöku á Egilsstöðum um kl. 16.45 og var síðan haldið áfram rannsóknum á svæðinu. Áætlað er að flugvélin lendi í Reykjavík kl. 19.45.