Sóttu slasaðan sjómann í lögsögu Grænlands
Fimmtudagur 21. ágúst 2014
Landhelgisgæslunni barst um miðnætti aðstoðarbeiðni frá þýskum togara um að sækja slasaðan skipverja. Togarinn var þá staddur djúpt úti fyrir Vestfjörðum, um 140 sjómílur norður af Straumnesi, inni í lögsögu Grænlands. Vegna fjarlægðar var nauðsynlegt að kalla út bakvakt á þyrlu Landhelgisgæslunnar og fóru TF-LÍF og TF-SYN frá Reykjavík klukkan 01:49 og var haldið beint á Ísafjörð þar sem TF-LÍF tók eldsneyti áður en hún hélt áfram að togaranum. TF-SYN var á meðan í biðstöðu á Ísafirði.
Þegar komið var að skipinu tóku skipverjar á móti tengilínu og seig svo stýrimaður um borð og tók á móti börum. Hinn slasaði skipverji var kominn um borð í TF-LÍF kl. 04:25 og héldu þá báðar þyrlurnar áleiðis til Reykjavíkur þar sem lent var um kl. 06:30.