Ekki er sjáanleg mengun á strandstað Akrafells - Varðskipið Ægir væntanlegt um hádegi

Laugardagur 6. september 2014

Landhelgisgæslan hélt í morgun fund með fulltrúum Umhverfisstofnunar, Samskipa og Samhæfingarstöðvar þar sem farið var yfir stöðuna vegna strands flutningaskipsins Akrafells. Talsverður sjór er í vél skipsins og hefur skipið misst allt vélarafl og rafmagn. Dælur hafa ekki undan og er unnið að því að útvega fleiri dælur. Ekki er sjáanleg mengun frá skipinu en unnið er að því að senda mengunargirðingar á staðinn frá bæjarfélögum á svæðinu.

Dráttartaug er komin í skipið frá Aðalsteini Jónssyni SU og er beðið áttekta en flóð er á svæðinu um hádegið. Reiknað er með að varðskipið Ægir komi á staðinn eftir þrjár klukkustundir og tekur þá við dráttartaug og vettvangsstjórn á svæðinu sem er nú í umsjón björgunarskipsins Hafbjargar frá Neskaupsstað. Ekki er vitað hvar lekinn er staðsettur en áætlað er að kafarar frá Ægi muni kanna botn skipsins.

Næsti stöðufundur Samhæfingarstöð með Umhverfisstofnun og fulltrúum Samskipa er áætlaður kl. 13:30.


Mynd af strandstað frá TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar.