Frontex óskar eftir varðskipi LHG í verkefni á Miðjarðarhafi

  • _MG_9299

Miðvikudagur 15. október 2014

Í vikunni barst Landhelgisgæslunni beiðni frá Frontex, landamærastofnun EU um að Landhelgisgæslan myndi senda varðskip til aðstoðar við landamæragæslu á Miðjarðarhafi. Landhelgisgæslan stefnir að því að verða við beiðninni og er nú hafinn undirbúningur sem miðar að því að varðskipið Týr fari í verkefnið sem mun standa yfir í desember mánuð með möguleika á framlengingu.

Reiknað er með að varðskipið fari á svæðið suður af Sikiley en þar hefur orðið gríðarleg aukning í fjölda flóttafólks síðustu misseri og hundruðir manna farist við að freista þess að komast til Evrópu. Frontex vinnur að því að stórauka viðbúnað á svæðinu og er óskað eftir skipum frá Ítalíu, Eistlandi, Möltu og Portúgal auk Íslands en því til viðbótar munu minni bátar og flugvélar taka þátt.

Landhelgisgæslan hefur tekið þátt í verkefnum á vegum Frontex frá árinu 2010, bæði með flugvél og varðskipi en Ísland er aðili að Frontex í gegnum Schengen samstarfið.  Starfsmenn Landhelgisgæslunnar á tímabilinu komið að óteljandi björgunaraðgerðum á Miðjarðarhafi þar sem þúsundum manna hefur verið bjargað og er mikil þörf á að Evrópuþjóðir taki höndum saman við leit-, björgun og eftirlit á svæðinu.