Töldu kínverskt ljósker vera neyðarblys

Fimmtudagur 16. október 2014

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi voru kallaðar út í kvöld eftir að tilkynning barst um neyðarblys á svæðinu. Björgunareiningar voru síðan afturkallaðar þegar í  ljós kom að um var að ræða kínverskt ljósker.

Landhelgisgæslan brýnir fyrir þeim sem hafa í huga að senda upp slík ljósker að láta lögreglu vita um stað og tímasetningu til að viðbragðsaðilar séu upplýstir en Land­helg­is­gæsl­an verður að kanna hverja til­kynn­ingu sem berst um neyðarblys á lofti. 

Sjá grein á Mbl.is frá sl. ári um slík ljósker

Mynd Mbl.is