Flest skip í höfn eða vari meðan óveðrið gengur yfir

  • _MG_0659

Sunnudagur 30. nóvember 2014

Samtals eru 141 skip í vöktun hjá Landhelgisgæslunni þessa stundina en talsverður fjöldi skipa hefur haldið í höfn eða eru í vari meðan óveðrið gengur yfir landið. Togari fékk í kvöld á sig brotsjó 85 sjómílur VSV af Malarrifi og brotnuðu tvær rúður. Nokkur sjór komst inn á gang skipsins, engan sakaði og er annars allt í lagi um borð. Skipverjar telja sig geta framkvæmt bráðbirgða viðgerð og ekki sé þörf á að halda til hafnar.

Nokkur skip eru staðsett í Ísafjarðardjúpi, flest þeirra fiskiskip. Einnig hafa fimm erlend flutningaskip leitað vars í Garðsjó og eitt flutningaskip er á leið inn í Ísafjarðardjúp. Fá skip eru á sjó við landið þessa stundina, fyrir utan nokkur skip úti fyrir Vestfjörðum og Norðurlandi.

Landhelgisgæslan fylgist vel með þróun veðursins, skipaumferð og sjólagi. Varðskipið Þór er til taks fyrir Austurlandi og er danskt varðskip til taks út af Vesturlandi. 

Mynd úr stjórnstöð LHG - Árni Sæberg