Rússneskar sprengjuvélar við Íslandsstrendur

Ekki flogið jafn nærri Íslandi frá brotthvarfi hersins

Tvær langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar af gerðinni Tupolev Tu-95, en þessi tegund er oftast nefnd „Björninn“, flugu inn í loftrýmiseftirlitssvæði NATO í nágrenni Íslands upp úr hádegi í gær. Rússneskar herflugvélar hafa ekki flogið svo nærri landinu frá brotthvarfi bandaríska hersins, en sprengjuvélarnar flugu tvisvar framhjá landinu, í síðara skiptið mjög nálægt ströndum Íslands og voru þær í 26 sjómílna fjarlægð frá Stokksnesi þegar næst var.

Fylgst var með vélunum í loftvarnaeftirlitskerfi NATO hér á landi sem vinnur úr gögnum frá ratsjárkerfi sem Landhelgisgæslan rekur og staðsett er í hverjum landsfjórðungi. Vélarnar komu inn í loftrýmiseftirlitssvæðið austur af Íslandi og héldu í suðurátt að Bretlandi og Írlandi. Þar voru þær auðkenndar af breskum orrustuþotum en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli (NATO Control and Reporting Center) hafði eftirlit með fluginu þann tíma sem vélarnar voru hér við land og tryggði flugöryggi í samvinnu við aðgerðastjórnstöð NATO (Combined Air Operation Center) í Uedem í Þýskalandi og flugleiðsögu Isavia. 

Birnirnir“ tveir sneru við síðdegis norður af Bretlandi og flugu sem leið lá aftur að Íslandi, meðfram suðurströnd Íslands og austur með landinu þar sem þær tóku beygju upp með Austurlandi og flugu loks aftur í norður í átt að Rússlandi.

Landhelgisgæslan sinnir daglegu loftrýmiseftirliti í samvinnu við NATO

Eftirlit Landhelgisgæslunnar með flugi rússnesku sprengjuflugvélanna er hluti af framkvæmd loftrýmiseftirlits og loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins sem Ísland er aðili að og á sér stað allt árið um kring.  Starfsmenn Landhelgisgæslunnar starfa í stjórnstöðinni í Keflavík og sinna eftirlitinu fyrir hönd Íslands.

Hér má sjá myndir annars vegar af sambærilegri vél og hins vegar af ratsjárstöðinni sem Landhelgisgæslan rekur á Gunnólfsvíkurfjalli


Fréttir erlendra fjölmiðla um málið:

http://news.sky.com/story/1430182/russia-a-real-and-present-danger-to-nato-states

http://www.bbc.com/news/uk-31530840