Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaðan sjómann til Djúpuvíkur á Ströndum

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF fór nú rétt fyrir klukkan þrjú í dag í loftið til að sækja slasaðan sjómann til Djúpuvíkur á Ströndum. Hinn slasaði er ekki í lífshættu en engu að síður var það mat þyrlulæknis að nauðsynlegt væri að sækja manninn. 

Áætlað er að þyrlan verði komin á vettvang innan klukkustundar. Veðuraðstæður á staðnum eru ágætar. 

Frétt uppfærð: TF-LIF lenti með sjúklinginn við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 17:36.