Áhöfnin á Tý bjargaði um 320 flóttamönnum af lekum fiskibát norður af Líbýu - magnaðar myndir frá björgunaraðgerðum

Varðskipið Týr bjargaði í dag um 320 flóttamönnum af fiskibát um 30 sjómílur norður af Líbýu. Eru flóttamennirnir nú allir um borð í Tý sem siglir áleiðis til Pozzallo á Sikiley og áætlar komu þangað síðla dags á morgun. Áhöfnin á Tý hlúir nú að flóttamönnunum en fólkið var nokkuð óttaslegið eftir hrakningarnar. Í hópnum er fjöldi barna og það yngsta rétt um ársgamalt. Þá eru einnig nokkrar konur í hópnum, þar af tvær þeirra barnshafandi.

Báturinn sem fólkið var á er ca.12 metra langur trébátur með vél. Leki var kominn að honum og er það því mikil mildi að áhöfnin á Tý bjargaði öllu fólkinu áður en báturinn sökk. 

Hér má sjá magnaðar myndir sem teknar voru af björgunaraðgerðum í dag.