Varðskipið Týr komið til Sikileyjar með flóttamennina

Varðskipið Týr kom til hafnar í Pozzallo á Sikiley í dag um klukkan tvö að íslenskum tíma með 320 flóttamenn sem áhöfn varðskipsins bjargaði í gær af lekum fiskibát 30 sjómílur norður af Líbýu.

Siglingin sóttist vel og hefur nú verið lokið við að flytja flóttamennina í land af ítölskum yfirvöldum. Gekk það ágætlega fyrir sig en fylgt er ströngum verklagsreglum við yfirheyrslur og annan frágang áður en flóttamönnunum er hleypt í land.

Er lokið hafði verið við að flytja alla flóttamennina í land tók áhöfn Týs til við að þrífa skipið og undirbúa það undir áframhaldandi verkefni. Heldur varðskipið síðan úr höfn snemma í fyrramálið.

Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru á siglingu varðskipsins og við komu til hafnar í Pozzallo í dag.