Framkvæmdastjóri NATO, Jens Stoltenberg heimsækir Landhelgisgæsluna

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, kom til Íslands í dag, fimmtudag í boði forsætisráðherra. Flugvél belgíska flughersins lenti með framkvæmdastjórann og fylgdarlið hans á Keflavíkurflugvelli í morgun þar sem fulltrúar utanríkisráðuneytisins tóku á móti honum. Hans fyrsta verk var að kynna sér varnartengd verkefni Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og loftrýmisgæslu Bandaríkjanna, sem fram fer nú um stundir undir merkjum Atlantshafsbandalagsins.  

Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar ásamt starfsmönnum Landhelgisgæslunnar tók á móti framkvæmdastjóranum og fór með hann og hans fylgdarlið um Öryggissvæðið þar sem öll helstu verkefni voru kynnt, þar með talið dagleg framkvæmd verkefna sem þar fer fram í samvinnu við stofnanir bandalagsins.  

Heimsókn sem þessi er mikilvæg í þeim tilgangi að sýna yfirmönnum Atlantshafsbandalagsins hvernig dagleg framkvæmd öryggis- og varnartengdra verkefna fer fram á Íslandi en fjöldi mannvirkja og búnaðar á Öryggissvæðunum eru á eignalista bandalagsins og hefur bandalagið styrkt framkvæmdir við viðhald og rekstur þeirra. Heimsókn framkvæmdastjórans til Landhelgisgæslunnar í morgun endaði í stjórnstöð NATO á Íslandi. Þar sér Landhelgisgæslan um framkvæmd samþætts loftrýmiseftirlits og loftrýmisgæslu í samvinnu við þær þjóðir sem eru hér á landi á hverjum tíma og aðgerðarstjórnstöð NATO (Combined Air Operations Center) í Uedem í Þýskalandi en stjórnstöðin hér á landi er auk þess tengd stjórnstöðvum NATO í Norður Ameríku, Noregi, Danmörku og Bretlandi. 

Síðla dags mun framkvæmdastjórinn heimsækja varðskipið Þór þar sem innanríkisráðherra, Ólöf Nordal og forstjóri Landhelgisgæslunnar taka á móti honum og kynna skipið.


 

Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Jón B. Guðnason yfirmaður starfsemi Landhelgisgæslunnar í Keflavík tóku á móti Stoltenberg í flugskýli Landhelgisgæslunnar og NATO á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli



 
Stoltenberg heilsar tengilið NATO á Íslandi og starfsmönnum Landhelgisgæslunnar.
Frá vinstri: Georg Kristinn Lárusson forstjóri, Hanne Johnslöv tengiliður NATO á Íslandi, Auðunn Friðrik Kristinsson verkefnastjóri á aðgerðasviði, Georg Einir Friðriksson sviðsstjóri í Keflavík og Svanhildur Sverrisdóttir mannauðsstjóri


 
Georg Kristinn Lárusson forstjóri býður framkvæmdastjórann og gesti velkomna

 
Tekið var á móti gestunum í flugskýli Landhelgisgæslunnar og NATO
á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli


 
Framkvæmdastjórinn og fylgdarlið kynna sér loftrýmisgæslu Bandaríkjanna sem fram fer nú
á starfssvæði Landhelgisgæslunnar undir merkjum Atlantshafsbandalagsins


 
Í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og NATO þar sem nú eru einnig Bandaríkjamenn
vegna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins

 
Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins ásamt fulltrúum Landhelgisgæslunnar og tengilið NATO á Íslandi.
Frá vinstri: Jón B. Guðnason, Georg Kristinn Lárusson, Jens Stoltenberg, Svanhildur Sverrisdóttir, Auðunn Friðrik Kristinsson og Hanne Johnslöv.