Varðskipið Þór í sjúkraflutningum á Hornströndum

Varðskipið Þór er nú á leið í Veiðileysufjörð í Jökulfjörðum til að sækja slasaða konu sem þar var á ferðalagi. Varðskipið var statt við utanvert Ísafjarðardjúp og er áætlað að það verði komið á vettvang nú fljótlega upp úr kl. 18:00. 

Ætlunin er að sigla með konuna til Ísafjarðar og er áætlað að varðskipið Þór verði komið þangað um kl. 20:00. Á meðan mun áhöfn varðskipsins hlúa að konunni í samráði við vakthafandi þyrlulækni Landhelgisgæslunnar en um borð er aðstaða til þess auk þess sem áhafnir varðskipa Landhelgisgæslunnar hafa hlotið sértæka þjálfun í meðferð slasaðra og sjúkra.