Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst 23. júlí með flugsveit tékkneska flughersins

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju fimmtudaginn 23. júlí með komu flugsveitar tékkneska flughersins. Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center).Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C orrustuþotur. 

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 25. - 29. júlí.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að þessu verkefni ljúki 27. ágúst en þá kemur til landsins flugsveit danska flughersins. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands.