Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir tvo erlenda ferðamenn sem festust á flæðiskeri

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni klukkan 16:13 í dag frá fjarskiptamiðstöð lögreglu um aðstoð þyrlu vegna tveggja erlendra ferðamanna sem fastir voru á flæðiskeri á sunnanverðu Snæfellsnesi og flæddi hratt að. Svæðið er nokkuð varasamt en þar er nú stórstreymt. Þornar hratt upp á milli en flæðir svo jafnan hratt að og erfitt að komast að með bátum.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA var við æfingar með flugbjörgunarsveitinni á Sandskeiði og hélt rakleiðis á vettvang. Voru ferðamennirnir sóttir með þyrlunni og þeir fluttir á þurrt land.