Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF í sjúkraflug til Danmerkur

Landhelgisgæslunni barst nú í morgun beiðni frá dönskum yfirvöldum gegnum Landspítalann um sjúkraflug til Danmerkur með ungt barn frá Grænlandi sem koma þurfti skjótt undir læknishendur í Danmörku. Barnið hafði verið flutt til Íslands frá Grænlandi í gær.

Brást Landhelgisgæslan skjótt við og var þegar kölluð út áhöfn af frívakt á flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF en flugvélin snéri heim í gær frá Grikklandi eftir þriggja mánaða dvöl á Grikklandi og Ítalíu við landamæraeftirlit fyrir Frontex, Landamærastofnun Evrópusambandsins.

Lagði TF-SIF af stað áleiðis til Danmerkur um þrjúleytið í dag. Sækist ferðin vel og er áætluð koma til Danmerkur rúmlega 21:00 í kvöld. Mun vélin þá snúa strax til baka og er hún áætluð til Íslands í nótt.