Sprengikúla fannst í vegkanti við bæinn Vatnsenda í Eyjarfirði
Fimmtudagur 28. júlí 2005.
Bóndi á Vatnsenda í Eyjarfirði fann nýverið sprengikúlu frá stríðsárunum í vegkantinum einn kílómetra frá bæjarhúsunum. Hún taldi að kúlan gæti reynst hættuleg svo að hún kom henni í hendur lögreglunnar á Akureyri. Lögreglan á Akureyri hafði þá strax samband við sprengjudeild Landhelgisgæslunnar sem sendi tvo sprengjusérfræðinga til að eyða kúlunni.
Við athugun sprengjusérfræðinganna á staðnum þar sem kúlan fannst og miðað við ástand kúlunnar er líklegast að hún hafi borist þangað með malarefni sem notað var í viðgerð á veginum. Við frekari athugun kom í ljós að malarefnið var tekið úr árbotni við Melgerðiseyri en þar var stór herflugvöllur í seinna stríði
Um var að ræða bandaríska sprengjukúlu af gerðinni M54 með hlaupvídd 37 mm sem var notuð í loftvarnabyssur. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar vara fólk við að snerta hluti sem gætu hugsanlega verið sprengjur. Hafa skal samband við lögreglu eða Landhelgisgæslu ef torkennilegir hlutir, sem gætu reynst vera sprengjur, finnast.
Mynd: Adrian King.