TF-GNÁ í tvö sjúkraflug

Mikið annríki hefur verið hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar síðasta hálfa sólahringinn en TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar hefur farið í tvö sjúkraflug á þeim tíma.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rúmlega átta í gærkvöldi beiðni um þyrlu vegna alvarlega veiks einstaklings á Ísafirði. Veðuraðstæður voru slæmar og því ekki fært sjúkraflugvél Mýflugs sem fyrst hafði verið óskað eftir.

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar fór því á vettvang en á flugleið var töluverð ókyrrð, skyggni slæmt og þónokkur ísing. Lent var á Ísafirði þar sem sjúklingurinn var fluttur um borð í þyrluna en á vettvangi var jafnframt ákveðið að flytja annan sjúkling frá Ísafirði sem komast þurfti undir læknishendur í Reykjavík. Þyrlan hélt því af stað með tvo sjúklinga til Reykjavíkur þar sem lent var rétt eftir miðnætti.

Klukkan rúmlega sex í morgun barst svo stjórnstöð beiðni um þyrlu vegna veiks einstaklings í Stykkishólmi. Þyrlan fór í loftið um hálfsjö og var komin á vettvang um tuttugu mínútum síðar. Sjúklingur hafði þá verið fluttur með sjúkrabíl í átt að Borgarfjarðarbrú til móts við þyrluna. Umtalsverð skýjahæð og þoka var á leiðinni svo fljúga þurfti lágt meðfram ströndu en flugið gekk eftir sem áður vel. Lent var með sjúkling um tuttugu mínútur yfir sjö í morgun við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.