Þyrlur Landhelgisgæslunnar kallaðar út

Vélarvana bátur undan Straumnesi, bílslys í Húnavatnssýslu og nærri Vík í Mýrdal, og slys við eggjatöku á Langanesi.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum neyðarkall frá báti sem var orðinn vélarvana norður af Rekavík bak Látur á Hornströndum. Bátinn rak í átt að Straumnesi en þar er stórgrýtt fjara og straumþung röst og því ljóst að talsverð hætta var á ferðum. Kallað var eftir aðstoð nærliggjandi báta og björgunarsveitir á Ísafirði og í Bolungarvík kallaðar út. Gunnar Friðriksson, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Ísafirði, og Gísli Hjaltason björgunarbátur björgunarsveitarinnar Ernis í Bolungarvík, héldu þegar á staðinn. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF einnig send af stað. Þegar báturinn var innan við hálfa sjómílu frá Straumnesi breyttist rekið svo hann rak norður fyrir. Gísli Hjaltason kom fyrstur á vettvang og tók bátinn í tog. Þeir eru nú á leið í land.

TF-LIF var komin í Ísafjarðardjúp þegar ljóst varð að skipverjinn á bátnum væri óhultur. Henni var þá snúið við austur á Langanes þar sem maður sem var við eggjatöku í Læknesstaðabjargi var lentur í sjálfheldu eftir að hafa slasast á fæti. Þá voru lögregla og björgunarsveitir á svæðinu komnar á vettvang. Á leiðinni þangað barst stjórnstöð hins vegar beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð vegna bílsslys í Vatnsdal, rétt vestan Blönduóss. Þyrlan lenti við slysstaðinn í Vatnsdal um sjöleytið og var farið með þá slösuðu á Sjúkrahúsið á Akureyri. 

Í þann mund sem TF-LIF var að leggja af stað frá Akureyri barst stjórnstöð beiðni frá lögreglu um að þyrlan sækti manninn sem slasaðist í bjarginu á Langanesi. Þá höfðu félagar úr björgunarsveitinni á Þórshöfn náð honum úr sjálfheldunni. TF-LIF lenti við Sjúkrahúsið á Akureyri með manninn snemma á ellefta tímanum í kvöld.

Á meðan þessu stóð barst stjórnstöð svo beiðni frá Neyðarlínunni um þyrluaðstoð vegna annars bílslyss, nærri Vík í Mýrdal. Þyrlan TF-SYN fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum og mætti hún sjúkrabíl með hinn slasaða á veginum að Landeyjahöfn rétt upp úr klukkan sjö.