Sjófarendur hlusti á neyðarrásina

Tvö tilvik undanfarinn sólarhring þar sem bátar detta úr ferilvöktun LHG og ekki næst samband við

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur í tvígang undanfarinn sólarhring sett í gang talsverðan viðbúnað vegna báta sem dottið hafa úr ferilvöktun og ekki náðst samband við fyrr en seint og um síðir. Enn og aftur eru sjófarendur minntir á að hlusta á rás 16, neyðarrás sjómanna, og gæta að ferilvöktunarbúnaði sínum.

Fyrra tilvikið kom upp um hádegisbilið í gær þegar bátur, sem var að veiðum norðvestur af Straumnesi, hætti að sýna í ferilvöktunarkerfum stjórnstöðvar LHG. Reynt var að kalla í bátinn á rásum 9 og 16 og hringt í skipstjórann en án árangurs. Þá gekk illa að ná í nærstadda báta í gegnum neyðarrásina. Hins vegar náðist samband símleiðis við tvo báta: Fríðu Dagmar, sem skar á línuna og hélt þegar í stað til leitar, og Einar Hálfdáns, sem einnig hætti veiðum til að leita. Þegar rúmur hálftími var liðinn frá því báturinn datt úr vöktun voru björgunarsveitir á Vestfjörðum kallaðar út, svo og þyrla Landhelgisgæslunnar. Nokkrum mínútum eftir að þyrlan fór í loftið kom Fríða Dagmar að bátnum sem saknað var og amaði ekkert að um borð. Voru þá bjargir afturkallaðar. Skipstjórinn endurræsti ferilvöktunarbúnaðinn og hafði samband við stjórnstöð LHG sem áminnti hann um að hlusta framvegis á rás 16.

Á níunda tímanum í morgun datt svo úr vöktun bátur sem var þá um tuttugu sjómílur norðvestur af Patreksfirði. Hvorki náðist í skipstjórann símleiðis né á rásum 9 og 16. Kallað var í nærstadda báta en enginn svaraði uppkallinu. Tveir bátar sem hringt var í staðfestu að þeir hefðu skömmu áður séð bátinn sem saknað var og fór annar þeirra, Katrín II, að svipast um eftir honum. Laust fyrir klukkan níu birtist báturinn loks aftur í ferilvöktunarkerfum stjórnstöðvar og hafði skipstjórinn um svipað leyti samband eftir að hafa séð á síma sínum að reynt hefði verið að hringja í sig.

Þessi atvik eru ekki einsdæmi og því brýnir stjórnstöð LHG fyrir sjófarendum að hafa kveikt á og fylgjast með ferilvöktunarbúnaði, auk þess að hlusta stöðugt á neyðarrás 16. Hún er eitt mikilvægasta öryggistæki sjófarenda en ef hlustun á hana er ekki virk veitir hún falskt öryggi.

Veður er annars gott á miðunum í kringum landið og því eru margir bátar á sjó. Snemma í morgun voru yfir sjö hundruð bátar og skip í ferilvöktun stjórnstöðvar LHG, þorri þeirra íslenskur.