Tundurdufli eytt á Eskifirði
Sunnudagur 12. júní 2005.
Skipstjórinn á Sólborgu ÞH-270 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um kl. 10 í morgun og óskaði eftir aðstoð vegna tundurdufls sem komið hafði upp með veiðarfærum skipsins. Skipið var þá statt í mynni Reyðarfjarðar. Skipstjórinn fékk samband við sprengjusérfræðing Landhelgisgæslunnar sem leiðbeindi honum um hvaða ráðstafanir ætti að gera.
Tveir starfsmenn sprengjudeildar héldu síðan austur á land og komu til Reyðarfjarðar um kl. 17. Síðan flutti björgunarsveitin Ársól á Reyðarfirði sprengjusérfræðingana með gúmmíbjörgunarbát út í skipið Sólborgu. Þar gerðu þeir duflið óvirkt. Síðan var Sólborgu siglt til hafnar á Reyðarfirði. Þar var duflið tekið í land og vegna sérstakra aðstæðna var duflið flutt til Eskifjarðar þar sem það var brennt.
Myndirnar tók Einar Guðberg Jónsson, varðstjóri í lögreglunni á Eskifirði.
Dagmar Sigurðardóttir
upplýsingafulltrúi
Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar hafði gert duflið óvirkt er Sólborg kom til hafnar á Reyðarfirði.
Duflið var geymt í fiskikassa um borð í Sólborgu.
Sprengjusérfræðingur og aðstoðarmaður hans undirbúa eyðingu duflsins.
Duflið brennt í gryfju við Eskifjörð.