Yfirmenn varnarliðsins í heimsókn hjá Landhelgisgæslunni

Mánudagur 25. apríl 2005.

Robert McCormick ofursti, yfirmaður Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, Peter Garms ofursti, yfirmaður sjúkrahússins á varnarsvæðinu, Thomas Greetan undirofursti, næst æðsti yfirmaður þyrlusveitar Varnarliðsins og Kimberly N. Chehardy höfuðsmaður og tengiliður Varnarliðsins við Landhelgisgæsluna komu í heimsókn til forstjóra Landhelgisgæslunnar í síðustu viku.

Heimsóknin var meðal annars til að endurgjalda heimsókn forstjórans til Varnarliðsins í vetur og til að kynnast starfsemi Landhelgisgæslunnar.  Náið samstarf er milli Varnarliðsins og Landhelgisgæslunnar á sviði leitar- og björgunarmála og öryggis- og eftirlitsmála.

Byrjað var á að halda almenna kynningu á starfsemi Landhelgisgæslunnar í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Seljavegi 32 og sérstaka kynningu á sprengjudeild stofnunarinnar sem sér alfarið um sprengjueyðingu á varnarsvæðinu. Þar næst var stjórnstöðin skoðuð og Sjómælingar Íslands. 

Að því loknu var ferðinni heitið um borð í varðskipið Óðinn og skipið skoðað undir leiðsögn Kristjáns Þ. Jónssonar yfirmanns gæsluframkvæmda. Að síðustu var haldið út í flugdeild Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll þar sem starfsemi hennar var kynnt.


Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.


Um borð í Óðni: Georg Kr. Ólafsson forstjóri, Dagmar Sigurðardóttir lögfr., Kristján Þ. Jónsson yfirmaður gæsluframkvæmda, Robert McCormick ofursti, yfirmaður varnarliðsins, Peter Garms ofursti, yfirmaður sjúkrahússins á varnarsvæðinu, Thomas Greetan undirofursti, næst æðsti yfirmaður þyrlusveitar varnarliðsins og Kimberly N. Chehardy höfuðsmaður, tengiliður varnarliðsins við Landhelgisgæsluna. (Mynd: Jóhann Reynisson)


Um borð í Óðni: Kimberly N. Chehardy höfuðsmaður, tengiliður varnarliðsins við Landhelgisgæsluna, Sigurður Ásgrímsson deildarstjóri tæknideildar og Ásgrímur Ásgrímsson deildarstjóri sjómælingadeildar og tengiliður Landhelgisgæslunnar við Varnarliðið. (Mynd DS).


Kristján Þ. Jónsson yfirmaður gæsluframkvæmda slær á létta strengi um borð í Óðni. (Mynd DS)


Georg Kr. Lárusson forstjóri og Robert McCormick ofursti ræða málin í flugskýli Landhelgisgæslunnar. (Mynd DS)


Sigurður Ásgeirsson þyrluflugstjóri, Þórarinn Ingi Ingason þyrluflugmaður, Sigurður Ásgrímsson deildarstjóri tæknideildar og Thomas Greetan undirofursti í skoðunarferð í flugskýli Landhelgisgæslunnar. (Mynd DS)