Úrslit í ljósmyndasamkeppni sjómanna Landhelgisgæslumönnum í hag
Fimmtudagur 31. mars 2005.
Eftirfarandi tilkynning barst frá Sjómannablaðinu Víkingi en Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður á varðskipinu Ægi vann 1. verðlaun í ljósmyndasamkeppni sjómanna með meðfylgjandi mynd.
Úrslit liggja fyrir í ljósmyndakeppni sjómanna sem Sjómannablaðið Víkingur efndi nú til í þriðja sinn. Dómnefnd var skipuð Árna Bjarnasyni forseta FFSÍ, Sæmundi Guðvinssyni ritstjóra Víkings og Ragnari Th. Sigurðssyni ljósmyndara. Samtals bárust 77 myndir og voru nær allar myndirnar teknar á stafrænar myndavélar. Keppnin var jöfn og hart barist um efstu sætin, enda voru flestar myndanna hið mesta augnayndi og ljóst að í hópi sjómanna eru margir frábærir ljósmyndarar.
Dómnefndinni var falið að velja myndir í fyrsta til þriðja sæti svo og 13 aðrar myndir sem til viðbótar færu í Norræna ljósmyndakeppni sjómanna, sem fram fór í Reykjavík skömmu síðar. Dómnefndin var sammála um að sú mynd sem verðskuldaði fyrstu verðlaun í Ljósmyndakeppni sjómanna væri Brimsigling eftir Jón Pál Ásgeirsson yfirstýrimann á varðskipinu Ægi. Myndin sýnir skipverja á varðskipinu Ægi kom úr vitanum á Norðfjarðarhorni. Mynd eftir Guðmund Birki Agnarsson stýrimann á s.s. Sæbjörgu hlaut 2. verðlaun og 3. verðlaun fékk mynd eftir Þorgeir Baldursson háseta á Sólbak EA.
Auk þeirra sem unnu til verðlauna fengu myndir frá eftirtöldum ljósmyndurum brautargengi í norrænu keppnina: Jóni Kr. Friðgeirssyni bryta á v.s. Tý, Guðmundi St. Valdimarssyni bátsmanni á v.s. Ægi og Guðmundi Kr. Kristjánssyni skipstjóra á m.s. Skógafossi. Í þeirri keppni fékk mynd eftir Þorgeir Baldursson 3. verðlaun og mynd eftir Guðmund Birki Agnarsson 4. verðlaun.

Verðlaunamynd Jóns Páls Ásgeirssonar stýrimanns á varðskipinu Ægi. Myndin heitir Brimsigling.


Mynd Guðmundar St. Valdimarssonar bátsmanns á varðskipinu Ægi sem valin var til þátttöku í norrænu keppninni. Myndin heitir ,,Gleðilegt nýár" og er af varðskipinu Ægi í höfn á Þingeyri á gamlárskvöld 2003.
