Fréttir

Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge, verður haldin hér á landi í ágúst

29. mar. 2005

Fimmtudagur 31. mars 2005.

 
Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge, verður haldin hér á landi í ágúst og er þetta er í fjórða sinn sem Landhelgisgæslan heldur slíka æfingu.  Þáttakendafjöldi hefur aukist ár frá ári. 

Landhelgisgæslan skipuleggur og stjórnar æfingunni í samstarfi við Varnarliðið og lögregluna á Keflavíkurflugvelli.  A.m.k. 70 sprengjusérfræðingar frá 7 löndum hafa tilkynnt þátttöku en þar af er hópur frá Svíþjóð sem nú tekur í fyrsta sinn þátt í æfingunni.  Hún verður haldin á Keflavíkursvæðinu.

Æfingarnar fara bæði fram á landi og sjó og snúast um varnir gegn hryðjuverkum.  Hóparnir starfa í fjóra daga undir sameiginlegri stjórn sem skipuð er fulltrúum frá nokkrum þátttökuþjóðum og er starfað samkvæmt reglum Atlantshafsbandalagsins (NATO). Meðal annars verða helstu tækninýjunar á sviði sprengjueyðingar notaðar, þ.m.t. vélmenni.

 

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

 


Frá Northern Challenge 2004.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica