Fréttir

Sjúkraflug TF-SIF til Rifs

28. mar. 2005

Mánudagur 28. mars 2005.

 

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sótti mann til Rifs í dag og flutti til Reykjavíkur.

 

Læknir á Ólafsvík hafði samband og óskaði eftir aðstoð vegna manns sem hafði fengið höfuðverka. 


Áhöfn TF-SIF var kölluð út kl. 15:34 og fór þyrlan í loftið kl. 15:56.  

TF-SIF lenti aftur á Reykjavíkurflugvelli með hinn slasaða innanborðs kl. 17:15.  Þar beið sjúkrabifreið sem flutti hann á Landspítala Háskólasjúkrahús.

 

Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica